Sendingar og afhending

Sendingar og afhending

Hvert sendum við?

Við sendum skafkort innan Íslands. Þær afhendingarleiðir sem eru í boði fyrir heimilisfangið þitt birtast í greiðsluferlinu.

Afhendingartími

Afhending tekur yfirleitt um 3 virka daga frá pöntun. Helgar og almennir frídagar teljast ekki virkir dagar. Pöntun sem er gerð á miðvikudegi getur því borist eftir helgi.

Tíminn er áætlun og getur lengst, til dæmis vegna veðurs eða álags í dreifingu. Verði veruleg töf á afgreiðslu pöntunar látum við þig vita. Lögbundin úrræði vegna afhendingardráttar haldast óskert.

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður birtist áður en þú lýkur kaupum og fer eftir afhendingarleið. Frí sending er með þremur skafkortum eða fleiri í sömu pöntun samkvæmt tilboðinu sem birtist í versluninni.

Pökkun og móttaka

Skafkortin koma í hlífðarhólkum. Gættu þess að heimilisfang, netfang og símanúmer séu rétt við pöntun og fylgdu leiðbeiningum flutningsaðila um móttöku eða afhendingarstað.

Berist vara skemmd, röng eða alls ekki skaltu hafa samband á skraf@skraf.is. Við aðstoðum við að rekja sendinguna og leysa málið. Ábyrgð á því að sending týnist eða skemmist við flutning á okkar vegum er hjá Skraf þar til þú eða tilnefndur móttakandi tekur við henni.